Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 08. febrúar 2021 12:00
Magnús Már Einarsson
Soucek sleppur við bann
Mynd: Getty Images
Tomas Soucek, miðjumaður West Ham, fer ekki í leikbann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Fulham um helgina.

West Ham áfrýjaði spjaldinu og Soucek sleppur við bann.

Soucek verður því ekki í banni gegn Manchester United í enska bikarnum annað kvöld.

Rauða spjaldið hjá Soucek um helgina var ansi ódýrt. Soucek rak höndina í andlitið á Aleksandar Mitrovic sem féll í jörðina.

Mitrovic virtist reyna að biðla til dómarans að gefa Soucek ekki rauða spjaldið. Samt sem áður, eftir langa VAR skoðun, fór rauða spjaldið á loft hjá Mike Dean dómara leiksins.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner