Peter Schmeichel, goðsögn hjá Manchester United, segir það of snemmt að skipta út David de Gea fyrir Dean Henderson.
Henderson er 23 ára gamall markvörður sem hefur staðið sig virkilega vel með Sheffield United á láni frá Manchester United. Einhverjir stuðningsmenn hafa kallað eftir því að Henderson taki stöðu De Gea sem aðalmarkvörður Man Utd á næsta tímabili.
De Gea hefur verið aðalmarkvörður Man Utd frá 2011. Fyrir nokkrum árum var hann talinn besti markvörður í heimi, en eftir nokkur mistök eru margir farnir að efast um Spánverjann.
Schmeichel sem er einn besti markvörður í sögu Manchester United, ef ekki sá besti, svaraði spurningum á Instagram Live. Þar svaraði hann spurningu sem hann fékk um Henderson og De Gea. Daninn sagði: „Henderson getur náð langt, en hann hefur aðeins spilað eitt tímabil hjá liði sem hefur staðið sig ótrúlega vel í ensku úrvalsdeildinni."
„Henderson þarf fleiri tímabil eins og þetta til að sannfæra fólk um að hann sé rétti maðurinn. Það er mjög mikill munur á að vera aðalmarkvörður á Bramall Lane og Old Trafford, mjög mikill."
Schmeichel segir að það sé allt öðruvísi að gera mistök þegar þú ert leikmaður Man Utd en þegar þú ert leikmaður Sheffield United.
„Ég man að hann gerði slæm mistök gegn Liverpool og þá var bara sagt að hann væri ungur og hæfileikaríkur og blah blah blah. Það er vegna þess að hann spilar fyrir Sheffield United."
„Ef hann gerir mistök á Old Trafford, fyrir Manchester United, þá mun hann fá allar fyrirsagnir og það er eina sem er talað um. Fólk fer að efast um þig og þín gæði."
„Þannig að spurningin: De Gea eða Henderson? Það er bara eitt svar við því."
Athugasemdir