Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 08. apríl 2021 22:40
Aksentije Milisic
Einkunnir ensku liðanna: Rashford og Saka bestir
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Manchester United og Arsenal voru í eldlínunni í kvöld í Evrópudeildinni.

Manchester United vann góðan útisigur á Granada með tveimur mörkum gegn engu en á sama tíma fékk Arsenal á sigur jöfnunarmark í uppbótartíma gegn Slavia Prag á heimavelli.

Sky Sports hefur gefið leikmönnunum Man Utd einkunnir fyrir frammistöðurnar og má sjá þær hér fyrir neðan.

Hjá United var hæsta einkunn sjö en það voru þrír leikmenn sem fengu hana. Victor Lindelof, Bruno Fernandes og maður leiksins, Marcus Rashford. Scott McTominay og Luke Shaw fengu lægstu einkunn sem var fimm.

Man Utd: De Gea (7), Wan-Bissaka (6), Lindelof (7), Maguire (6), Shaw (5), McTominay (5), Pogba (6), James (6), Greenwood (6), Fernandes (7), Rashford (7).

Varamenn: Telles (6), Matic (5)

Maður leiksins: Marcus Rashford.

Í jafntefli Arsenal gegn Slavia Prag var það The Independent sem sá um einkunnargjöf.

Bukayo Saka þótti vera bestur í liði Arsenal en hann fékk 7 í einkunn. Ásamt honum fengu Rob Holding, Gabriel, Pierre-Emerick Aubameyang og Nicolas Pepe allir 7.

Arsenal: Leno (6), Bellerin (6), Holding (7), Gabriel (7), Cedric (5), Partey (5), Xhaka (5), Willian (5), Rowe (6), Saka (7), Lacazette (6).

Varamenn: Aubameyang (7), Pepe (7), Elneny (6), Martinelli (6)

Maður leiksins: Bukayo Saka.
Athugasemdir
banner
banner
banner