Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 08. apríl 2021 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin í dag - Man Utd og Arsenal í 8-liða úrslitum
Mynd: Getty Images
Manchester United og Arsenal mæta til leiks í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Arsenal tekur á móti tékknesku undrunum í Slavia Prag á meðan Man Utd heimsækir talsvert virtari andstæðinga, Rauðu djöflarnir kíkja til Granada á Spáni.

Stærsti leikur kvöldsins fer þó fram í Hollandi þar sem Ajax tekur á móti AS Roma í leik sem lofar mikilli skemmtun.

Dinamo Zagreb og Villarreal eigast þá einnig við, en Dinamo sló Tottenham óvænt úr leik í 16-liða úrslitum.

8-liða úrslit:
19:00 Granada CF - Man Utd
19:00 Arsenal - Slavia Prag
19:00 Ajax - Roma
19:00 Dinamo Zagreb - Villarreal
Athugasemdir
banner
banner