Fotbolti.net
08.04.21 - 19:21
Aksentije Milisic

Hljóp nakinn inn á völlinn í leik Granada og Man Utd - „Virkaði í góðu standi"

Maðurinn stöðvaður.

Maðurinn stöðvaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Nú er í gangi leikur Granada og Manchester United í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Þegar þetta er skrifað er staðan 0-0 en í byrjun leiks átti sér stað athyglisvert atvik.

Það hljóp nakinn maður inn á völlinn og tók á sprettinn. Myndavélarnar voru fljótar að beinast af manninum eins og gengur og gerist í beinum útsendingum.

Í staðinn var sýnd nærmynd af Marcus Rashford á meðan maðurinn var fjarlægður. Guðmundur Benediktsson lýsir leiknum á Stöð 2 Sport.

„Þessi meistari leit vel út, virkaði í góðu standi, Covid standi, sýnum þetta kannski hægt í hálfleik," sagði Guðmundur eftir þessa uppákomu.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.