Fotbolti.net
08.07.21 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Boltastrákurinn skrifar undir samning við Liverpool

Alexander-Arnold tók hornspyrnuna.

Alexander-Arnold tók hornspyrnuna.

Canon

Mynd: Getty Images

Oakley Cannonier, boltastrákurinn sem hjálpaði Liverpool að vinna 4-0 sigur á Barcelona í Meistaradeildinni - eftirminnilega - hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við félagið.
Cannonier, sem er 17 ára sóknarmaður, var hrósað í hástert þegar hann var fljótur að hugsa í 4-0 sigri Liverpool fyrir tveimur árum síðan. Hann kom boltanum snöggt á Trent Alexander-Arnold, sem var einnig fljótur að hugsa.

Alexander-Arnold tók hornspyrnu og Divock Origi kom Liverpool í 3-0. Varnarmenn Barcelona voru alveg sofandi.

Liverpool vann að lokum 4-0 og einvígið 4-3 eftir að hafa tapað útileiknum 3-0.

Cannonier er efnilegur leikmaður og hefur spilað fyrir yngri landslið Englands.

Liverpool vann Meistaradeildina eftir sigurinn á Barcelona; þeir unnu 2-0 sigur á Tottenham í úrslitaleiknum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.