Fotbolti.net
08.08.18 - 22:22
Sverrir Örn Einarsson

Gunnar Þ: Við fögnum fjölbreytileikanum

Auglýsing
Gunnar Þorsteinsson fyrirliði Grindavíkur

Gunnar Þorsteinsson fyrirliði Grindavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Gunnar Þorsteinsson fyrirliði Grindvíkinga átti góðan leik í sigri sinna manna gegn Víkingum í rokinu í Grindavík í kvöld. Gunnar skartaði fallegu fyrirliðabandi í regnbogalitum í kvöld í tilefni gleðidaga sem fréttaritara lék forvitni að vita um.
„Við erum fjölþjóðlegur hópur og ég held við séum allavega sjö ef ekki fleiri þjóðerni innan hópsins hjá okkur og við fögnum bara fjölbreytileikanum og þykir þetta setja skemmtilegan svip á mannlífið.“

Grindvíkingar lögðu mikið á sig í dag og áttu mjög góðan fyrri hálfleik við erfiðar aðstæður en hvernig mat Gunnar leik liðsins í dag?

„Byrja á því að hrósa KSÍ fyrir að fresta leiknum. Aðstæður hérna í gær buðu engan veginn upp á knattspyrnuiðkun og ef mönnum finnst leikurinn í kvöld hafa borið bragð af því að það væri hvasst þá hefðu menn átt að sjá aðstæður hér í gær. En hvað varðar spilamennskuna hjá okkur þá fannst mér fyrri hálfleikur einhver sá besti í sumar hjá okkur. Svolítið högg þegar við fáum markið á okkur mjög klaufalegt, svolítið enbeitingarleysi og seinni hálfeikur fór svo meira í að halda fengnum hlut í staðinn fyrir að gefa í.Við erum með svolítið verri markatölu en liðin í kringum okkur en fyrst og fremst gott að sigla heim þessum þremur stigum.“

Sagði Gunnar Þorsteinsson fyrirliði Grindavíkur en nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.