Fotbolti.net
08.11.17 - 17:41
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Doha

Rúnar Már: Allir að hugsa um Rússland

Auglýsing
R\'unar Már Sigurjónsson á æfingu í Katar.

R\'unar Már Sigurjónsson á æfingu í Katar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Rúnar Már Sigurjónsson kom inn í hálfleik þegar Ísland tapaði 1-2 gegn Tékkum í Doha í dag.

Það var 30 stiga hiti meðan á leik stóð og tvisvar teknar vatnspásur.
„Þegar sólin er niðri er þetta allt í lagi. Völlurinn var nokkuð þurr en það venst. Það var gott að fá 45 mínútur og reyna að sýna hvað maður getur,\" segir Rúnar.

„Tékkarnir stjórnuðu leiknum í fyrri hálfleik og voru betri en við fórum aðeins hærra og lokuðum aðeins á þá. Við fengum slatta af færum en á móti fengu þeir færi. Úrslitin skipta ekki öllu máli. Menn sem hafa fengið færri mínútur fengu tækifæri.\"

Það er mikil samkeppni um að vera í hópnum og þar er Rúnar í mikilli baráttu um að komast til Rússlands. Hann segir að HM í Rússlandi sé bak við eyrun á mönnum.

„Ég held að allir séu að hugsa um Rússland, á hverjum einasta degi er maður fókuseraður á Rússland næsta sumar. Maður þarf bara að standa sig með félagsliði sínu og grípa tækifærið þegar maður er með landsliðinu.\"

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.