Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. janúar 2023 21:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin: Arsenal að ganga frá Oxford
Mynd: EPA

Það gekk illa hjá Arsenal að opna vörn Oxford en það tókst loks eftir um klukkutíma leik.


Arsenal fékk þá aukaspyrnu út á kannti sem Fabio Vieira tók. Hann sendi boltann fyrir beint á kollinn á Mohamed Elneny sem skallaði boltann í netið.

Ekki líklegasti markaskorarinn enda var þetta fyrsta mark hans á tímabilinu fyrir félagið.

Eddie Nketiah skoraði annað mark stuttu síðar. Aftur var það Vieira sem lagði upp markið en í þetta sinn átti hann hnitmiðaða stungusendingu á Nketiah sem lék á markvörð Oxford og skoraði í opið markið.

Nketiah gerði svo endanlega út um leikinn með þriðja markinu og öðru marki sínu.

Markið hjá Elneny

Mark nr 1 hjá Nketiah

Mark nr 2 hjá Nketiah


Athugasemdir
banner
banner
banner