sun 09. ágúst 2020 13:20
Aksentije Milisic
Ferdinand um Thiago: Yrði frábær kaup hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur hrósað Thiago Alcantara í hástert og segir að ef Liverpool kaupir leikmanninn þá yrði það frábært fyrir þá.

Thiago hefur mikið verið orðaður við Liverpool á síðustu dögum og sagði Hans Flick, þjálfari Bayern, að hann skilji það að Thiago hafi metnað fyrir því að spila í ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta væri frábæru kaup hjá Liverpool, Thiago stjórnar umferðinni," sagði Ferdinand á BT Sport í gær.

„Hann stjórnar tempóinu í leiknum, hann er með sjónarhorn alls staðar á vellinum, sér fyrir aftan sig og sér allt sem er að gerast. Hann veit hvert á að senda næst."

„Thiago er mjög gáfaður leikmaður og hann talar ensku sem er mikill kostur. Þetta væri draumur fyrir Liverpool, þetta er týpa af leikmanni sem Liverpool er ekki með."

Thiago hefur verið í sjö ár hjá Bayern þar sem hann hefur unnið deildina öll þessi á


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner