Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 09. október 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Messi íhugaði að fara frá Barcelona
Mynd: Getty Images
Lionel Messi segist hafa íhugað að fara frá Barcelona árið 2013 þegar skattalagabrot hans voru til rannsóknar á Spáni.

Messi var árið 2016 sektaður um tvær milljónir evra fyrir brotið og dæmdur í 21 mánaða fangelsi. Hann borgaði hins vegar 250 þúsund evrur aukalega og þurfti því ekki að sitja inni.

„Á þessum tíma hugsaði ég um að fara," sagði Messi í viðtali í vikunni og vísaði þar í tímann þegar rannsókn á málinu var í gangi árið 2013.

„Það var ekki út af Barcelona heldur vildi ég fara frá Spáni. Mér fannst farið mjög illa með mig og ég vildi ekki vera hér lengur."

„Ég var með dyrnar opnar fyrir mörg félög en ég fékk aldrei opinbert tilboð því allir vissu að ég vildi vera áfram."

Athugasemdir
banner
banner
banner