Fotbolti.net
10.01.23 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Útlit fyrir að Memphis muni fylla í skarðið

Memphis Depay.

Memphis Depay.

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid vonast til að landa hollenska framherjanum Memphis Depay í þessum mánuði.
Memphis er ekki ofarlega í goggunarröðinni hjá Barcelona og má hann yfirgefa félagið.

Atletico var að leyfa portúgalska landsliðsmanninum Joao Felix að fara til Chelsea á láni. Það þykir líklegt að Diego Simeone muni hætta sem þjálfari Atletico eftir leiktíðina og þá gæti myndast aftur pláss fyrir Felix, en þeir hafa ekki náð vel saman.

Þangað til gæti Atletico fyllt í skarð Felix með Memphis. Ítalski fjölmiðlamaðurinn Fabrizio Romano segir frá því að Atletico hafi mikla trú á því að félagið geti náð að landa hollenska framherjanum frá kollegum sínum í Barcelona.

Viðræður eru í gangi á milli Atletico og Barcelona og munu halda áfram í þessari viku. Barcelona er sem stendur á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar en Atletico er í fimmta sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.