Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardaginn var ótímabæra spáin fyrir Lengjudeildina opinberuð. Baldvin Már Borgarsson sérfræðingur þáttarins mætti í hljóðver, skoðaði liðin og gaf þeim einkunn fyrir félagaskiptamarkaðinn.
Lengjudeild karla fer af stað 2. maí. Aðeins efsta liðið kemst beint upp. Liðin í sætum 2-4 fara svo í umspil sem lýkur með úrslitaleik á Laugardalsvelli.
Baldvin spáir því að HK vinni Lengjudeildina og fari því beint upp aftur. Fylkir sem féll með HK-ingum fara í umspilið ásamt Keflavík, Þrótti og Njarðvík.
Nýliðarnir Selfoss og Völsungur falla hinsvegar beint aftur niður í 2. deild ef spáin rætist.

Ótímabæra Lengjudeildarspáin
1. HK
2. Fylkir
3. Keflavík
4. Þróttur
5. Njarðvík
6. Leiknir
7. Grindavík
8. Fjölnir
9. Þór
10. ÍR
11. Selfoss
12. Völsungur