Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 10. apríl 2021 06:00
Victor Pálsson
Jorginho opinn fyrir því að snúa aftur
Mynd: Getty Images
Jorginho, leikmaður Chelsea, er til í að snúa aftur til Napoli einn daginn ef tækifærið gefst.

Jorginho er 29 ára gamall miðjumaður en hann kom til Chelsea frá Napoli árið 2018 og spilar reglulega fyrir enska liðið.

Það er oft talað um að Jorginho vilji snúa aftur til Napoli en hann talar alltaf afar vel um sína reynslu þar.

Ítalinn gæti farið aftur heim einn daginn en eins og er þá einbeitir hann sér að verkefninu á Stamford Bridge.

„Ég upplifði frábæra tíma þarna og er mjög hreifinn af bæði borginni og stuðningsmönnunum," sagði Jorginho.

„Ég er ekki að hugsa um það núna og einbeiti mér alveg að Chelsea. Ef það er möguleiki einn daginn, þú veist ekki hvenær, að snúa aftur þá væri ég auðvitað til í það."
Athugasemdir
banner
banner
banner