Fotbolti.net
10.08.18 - 22:22
Sverrir Örn Einarsson

Gunnar Magnús: Reynir á góð lið þegar á móti blæs

Auglýsing
Gunnar Magnús:  Reynir á góð lið þegar á móti blæs
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Keflavíkurkonur töpuðu í kvöld sínum fyrsta leik í Inkasso deilda kvenna í sumar þegar Fylkir hirti öll stiginn þrjú í leik liðanna í kvöld.
Keflavík heldur þó toppsætinu en hafa nú aðeins eins stigs forystu á Fylki sem á auk þess leik til góða.
„Það eru gríðarleg vonbrigði að tapa þessum leik bara eins og við spiluðum þennan leik lengst um. Bara dómineruðum algjörlega þennan fyrri háfleik það var bara eitt lið á vellinum þótt við hefðum kannski átt að skapa okkur aðeins meira.“

Sagði Gunnar Magnús Jónsson um fyrsta deildartap sumarsins.

Keflavík er þó enn í góðri stöðu í deildinni og eru enn í kjörstöðu í baráttunni um sæti í Pepsideildinni að ári. Gunnar býst vart við öðru en sínum stelpum grimmum og ákveðnum í næsta leik.

„Já það er hárrétt hjá þér. Það reynir á góð lið þegar það blæs aðeins á móti og við erum búin að ræða það og það er ekki spurning að það er hugur í stelpunum og koma sterkar til baka. Það eru engin endalok þó að við höfum tapað leik.

Sagði Gunnar Magnús en nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.