Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. ágúst 2020 17:58
Brynjar Ingi Erluson
Meunier um tímann hjá PSG: Mikið af afmælisveislum
Thomas Meunier er farinn til Dortmund
Thomas Meunier er farinn til Dortmund
Mynd: Getty Images
Belgíski hægri bakvörðurinn Thomas Meunier yfirgaf franska félagið Paris Saint-Germain og gekk til liðs við Borussia Dortmund í sumar en hann ræðir partímenninguna hjá PSG.

Meunier ólst upp hjá Virtuen í Belgíu áður en hann samdi við Club Brugge árið 2011. Hann spilaði með liðinu í fimm ár áður en Paris Saint-Germain festi kaup á honum en hann segir það hafa verið menningarsjokk.

Leikmenn PSG eru þekktir fyrir að halda svakalegar afmælisveislur og má þar helst nefna leikmenn á borð við Neymar og Thiago Silva en Meunier segist hafa farið í svakalegar afmælisveislur á tíma sínum hjá PSG.

„Þetta var ekkert nema endalaust partí og afmælisveislur. Þetta var alveg ótrúlegt," sagði Meunier.

„Þegar ég var hjá Club Brugge þá fögnuðum við afmælum með því að fara í pílu eða billjarð á einhverjum bar en þetta er sturlað í París."

„Þetta er svolítið í takt við það sem er í gangi hjá félaginu. Menn voru leigja hallir og það voru hundruðir manna í þessum veislum en þar sá maður að þetta eru meira en bara fótboltamenn. Þetta eru stjörnur."

„Ég skemmti mér vel en þetta var alltof mikið en þetta er víst bara partur af leiknum,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner