Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 10. september 2020 21:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Fram kom til baka með tveimur vítamörkum
Arna gerði tvö af vítapunktinum.
Arna gerði tvö af vítapunktinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 2 - 1 Hamar
0-1 Íris Sverrisdóttir
1-1 Arna Sól Sævarsdóttir
2-1 Arna Sól Sævarsdóttir

Fram hafði betur gegn Hamri þegar liðin áttust við í 2. deild kvenna í kvöld. Leikið var í Safamýri.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Íris Sverrisdóttir gestunum yfir eftir hornspyrnu.

Fram jafnaði þegar Arna Sól Sævarsdóttir skoraði af vítapunktinum og hún var aftur á ferðinni stuttu síðar og aftur var það af vítapunktinum. Lokatölur 2-1 fyrir Fram. Arna setti báðar spyrnurnar á mitt markið.

Fram er áfram á botninum á markatölu, en bæði Fram og Hamar eru með tíu stig núna, rétt eins og Sindri og ÍR.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner