Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. október 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Landsleikir í dag - Halda Færeyjar áfram að vinna?
Frá Þórsvelli í Færeyjum.
Frá Þórsvelli í Færeyjum.
Mynd: Getty Images
Þjóðadeildin byrjar að rúlla aftur í dag.

Frændur okkar frá Færeyjum hafa farið gríðarlega vel af stað í D-deild Þjóðadeildarinnar og eru með sex stig eftir tvo leiki. Þeir taka á móti Lettlandi í dag og verður sá leikur sýndur í beinni útsendingu.

Það hefjast tveir leikir klukkan 13:00, tveir leikir klukkan 16:00 og þrír leikir klukkan 18:45.

Leikur Færeyja og Lettlands hefst klukkan 16 en klukkan 18:45 verður sýnt frá tveimur leikjum. Þeir eru báðir í A-deild. Úkraína fær Þýskaland í heimsókn og Spánn mætir Sviss.

laugardagur 10. október

UEFA NATIONS LEAGUE A: Group Stage
18:45 Úkraína - Þýskaland (Stöð 2 Sport 4)
18:45 Spánn - Sviss (Stöð 2 Sport 2)

UEFA NATIONS LEAGUE C: Group Stage
13:00 Montenegro - Azerbaijan
13:00 Luxembourg - Kýpur

UEFA NATIONS LEAGUE D: Group Stage
16:00 Liechtenstein - Gibraltar
16:00 Færeyjar - Lettland (Stöð 2 Sport 4)
18:45 Andorra - Malta
Athugasemdir
banner