Fotbolti.net
10.11.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Phil Neville orðaður við Sheffield Wednesday

Phil Neville orðaður við Sheffield Wednesday
Canon

Mynd: Getty Images

Phil Neville er einn af því sem kemur til greina sem næsti stjóri Sheffield Wednesday.

Garry Monk var rekinn frá Sheffield Wednesday í gær en liðið er í næstneðsta sæti í Championship deildinni.

Neville hefur þjálfað enska kvennalandsliðið undanfarin ár en hann hefur áhuga á að taka við félagsliði.
Neville tilkynnti fyrr á árinu að hann muni hætta með kvennalandsliðið eftir Ólympíuleikana næsta sumar en hann gæti ákveðið að hætta strax til að taka við Sheffield Wednesday.

Auk Neville hafa Tony Pulis, Nigel Pearson og Paul Cook verið orðaðir við stjórastöðuna hjá uglunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.