Fotbolti.net
11.06.18 - 09:32
Magnús Már Einarsson

Birkir Bjarna: Kannski ekki eins góð liðsheild hjá Argentínu

Auglýsing
Birkir á æfingu íslenska landsliðsins í morgun.

Birkir á æfingu íslenska landsliðsins í morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Þetta er gríðarlega sterkt lið með frábæra leikmenn en það er kannski ekki eins góð liðsheild. Við höfum oft staðið okkur vel á móti góðum liðum og vonandi gerum við það aftur,\" segir Birkir Bjarnason, leikmaður íslenska landsliðsins, um leikinn gegn Argentínu á laugardaginn.

„Það er einn maður þarna sem er frábær og getur tekið 4, 5 eða 6 leikmenn á. Kannski ættum við að reyna að stoppa hann sérstaklega. Við reynum að spila okkar leik og vera þéttir, þá eigum við ágætis möguleika.\"
Birkir hefur leikið bæði á miðjunni og á kantinum með íslenska landsliðinu í aðdraganda HM.

„Með félagsliðinu líður mér betur inni á miðjunni. Ég hef alltaf spilað á kantinum hér og líður mjög vel þar. Það er alltaf jafn gaman að spila á miðjunni. Ég spila þar sem er þörf á mér og geri mitt besta,\" sagði Birkir.

Sjá einnig:
Birkir æfir í dag - Óttaðist fyrst tognun

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.