Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
   þri 11. júní 2019 21:48
Egill Sigfússon
Jói Berg: Vitum hvernig við eigum að spila á móti Tyrkjum
Icelandair
Jói Berg í leiknum í kvöld
Jói Berg í leiknum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland vann Tyrkland 2-1 í undankeppni EM 2020 á Laugardalsvelli í kvöld og eru með 9 stig eftir fyrstu 4 leikina í undankeppninni. Jóhann Berg Guðmundsson sagði liðið hafa haft yfirtökin í leiknum og sigurinn hafi verið verðskuldaður.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  1 Tyrkland

„Auðvitað var gríðarlega mikilvægt að ná í þetta fyrsta mark sem við gerðum og svo auðvitað annað markið líka. Þá fannst mér við vera gjörsamlega með þetta en svo ná þeir í þetta mark sem var klaufalegt hjá okkur en þeir voru ekki að skapa sér mikið í leiknum."

Jói sagði að hann hefði verið klár á því að þeir myndu vinna, enda með gott tak á Tyrkjunum.

„Ég sagði við strákana fyrir leik að ef við myndum spila okkur leik myndum við vinna þennan leik og við gerðum það. Við erum með ágætis tak á þeim og við vitum hvernig við eigum að spila á móti Tyrkjum og höfum sýnt það í síðustu leikjum."

Jói hefur verið tæpur vegna meiðsla á þessari leiktíð og sagði að sumarfríið framundan sé verulega kærkomið.

„Ég er bara búinn að vera smá í smá basli og lítið æft en mjög gott að ná í þetta margar mínútur í dag og leggja upp þetta fyrsta mark sem var mjög mikilvægt. Það verður gott að slaka á og mæta ferskur í undirbúningstímabilið eftir einn mánuð eða svo."


Athugasemdir
banner