Sjáðu markið: Jimenez tvöfaldaði forystu Mexíkó - Sex mörkum frá því að jafna Chicharito

Raul Jimenez í leiknum gegn Suður-Afríku

Mynd: EPA

Raul Jimenez í leiknum gegn Suður-Afríku

Mynd: EPA
Framherjinn Raul Jimenez var rétt í þessu að tvöfalda forystuna fyrir Mexíkó gegn Suður-Afríku á Mexico City-leikvanginum í Mexíkó í opnunarleik HM í kvöld.

TENGT EFNI
Sögulegt augnablik í Mexíkó
Jimenez var að skora sitt 46. landsliðsmark, en hann gerði það með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Roberto Alvarado frá hægri.
Verðskuldað hjá Jimenez, sem er nú búinn að jafna Jared Borgetti í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn í sögu mexíkóska landsliðsins. Jimenez þarf enn sex mörk til þess að ná markameti Javier Hernandez, eða Chicharito eins og hann er kallaður.
Allt stefnir í þægilegan sigur hjá heimamönnum í Mexíkó.
Sjáðu markið hér