Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. júlí 2020 23:05
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Þessir leikmenn eiga skilið að spila í Meistaradeildinni
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, var ánægður með að tryggja sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili er liðið vann Brighton 5-0.

Raheem Sterling skoraði þrennu og þá komust þeir Bernardo Silva og Gabriel Jesus einnig á blað.

Manchester City er búið að tryggja sæti í Meistaradeildinni en það kemur þó í ljós á mánudag hvort liðið fái að spila í Evrópukeppni á næsta tímabili.

„Ég var ánægður með allt í kvöld. Við erum á góðu róli og tilbúnir í síðustu leikina í deild- og Meistaradeild," sagði Guardiola.

Við náðum að gleyma úrslitunum gegn Southampton síðustu helgi þar sem við spiluðum reyndar frábærlega. Fótbolti er furðulegur stundum en við náðum bara ekki að skora þar. Við erum lið sem skapar mikið af færum og í dag náðum við að nýta þau."

„Við erum núna búnir að tryggja sæti í Meistaradeildinni sem var algert lágmark hjá liðinu. Þessir leikmenn hafa náð þeim áfanga síðustu sex eða sjö árin. Við höfum unnið fyrir því á vellinum og á mánudaginn vona ég að UEFA leyfi þessum leikmönnum að spila á næsta tímabili. Þeir eiga það skilið," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner