Fotbolti.net
11.07.21 - 19:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aldrei komið mark eins snemma í úrslitaleik EM og núna

Shaw fagnar markinu.

Shaw fagnar markinu.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Englendingar eru komnir yfir í úrslitaleik Evrópumótsins sem er núna í gangi.

Það var vinstri bakvörðurinn Luke Shaw - sem hefur verið mjög góður á mótinu - sem skoraði markið.
Þetta gerðist strax á annarri mínútu leiksins. Kieran Trippier átti fyrirgjöf sem rataði á kollega hans vinstra megin. Shaw kláraði eins vel og hann gat.

Algjör draumabyrjun hjá Englandi sem hefur ekki unnið stórmót í 55 ár. Það verður vel fagnað í Englandi í kvöld ef þetta endar svona en það er nóg eftir.

Hér að neðan má sjá myndband af markinu.

Markið kom eftir eina mínútu og 57 sekúndur. Það er nýtt met; aldrei hefur mark komið eins snemma í úrslitaleik EM og núna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.