Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. júlí 2021 18:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vesen fyrir utan Wembley
Mynd: EPA
Það hefur ekki verið sérlega gott andrúmsloft fyrir utan Wembley í allt kvöld.

Það er þarna fólk sem er að reyna að skemma fyrir öðru fólki sem er að reyna að skemmta sér.

Úrslitaleikur Evrópumótsins fer fram á Wembley. Heimamenn í Englandi mæta Ítalíu.

Það er ekki á hverjum degi þar sem England spilar úrslitaleik á stórmóti, það gerðist síðast 1966.

Það er sagt frá því í enskum fjölmiðlum að fólk hafi reynt að brjóta sér leið inn á Wembley. Það er mikill fjöldi myndbanda á Twitter sem sýnir fólk hlaupa fram hjá öryggisvörðum til að reyna að koma sér inn á völlinn.

Í yfirlýsingu frá Wembley kemur fram að enginn hafi komist inn á völlinn án miða, en hvort það sé satt er annað mál.



Athugasemdir
banner
banner
banner