Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. september 2020 19:38
Aksentije Milisic
Sverrir fékk gult í sigri - Sandra spilaði þegar Bayer vann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gríska úrvalsdeildin fór af stað í dag og áttu Sverrir Ingi Ingason og félagar í PAOK leik gegn Larissa á heimavelli.

Sverrir var í byrjunarliði heimamanna og lék hann allan leikinn í góðum 1-0 sigri. Sverrir fékk gult spjald eftir 40. mínútna leik.
Það var Christos Tzolis sem gerði eina mark leiksins á 16. mínútu og góð byrjun á mótinu hjá PAOK staðreynd.

Þá lék Sandra María Jessen allan leikinn í sigri Bayer Leverkusen á Duisburg í dag. Leiknum lauk með 2-0 sigri Leverkusen en bæði mörkin komu undir blálokin.

Leverkusen hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í þýsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.

Þá var Bjarni Mark Antonsson ekki í leikmannahópi Brage sem vann 1-0 útisigur á Trelleborgs. Brage er í sjötta sæti deildarinnar með 25 stig.
Athugasemdir
banner
banner