11.11.20 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Fyrirliði Völsungs á förum?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Harpa Ásgeirsdóttir, fyrirliði Völsungs, gæti verið á förum frá Húsvíkingum.
Harpa átti ár eftir af samningi sínum við Völsung en ákvað að nýta sér uppsagnarákvæði í honum.

„Ég er ekki ákveðin í því hvað ég ætla að gera en ég er í toppstandi," sagði hin 34 ára gamla Harpa við Fótbolta.net.
Undanfarin ár hefur Harpa verið í lykilhlutverki í liði Völsungs.
Hún hjálpaði liðinu upp úr 2. deildinni í fyrra en í ár féll Völsungur aftur úr Lengjudeildinni.
Samtals hefur Harpa skorað 58 mörk í 186 leikjum á meistaraflokksferlinum. Langflestir leikjanna eru með Völsungi en hún hefur einnig leikið með Aftureldingu og KR.