
Það hefur verið löng óvissa um hverjir verða næstu keppnisleikir hjá kvennalandsliði Íslands en um næstu mánaðarmót skýrast málin loksins.
Stefnt er að því að 30. apríl næstkomandi verði dregið í undankeppni HM 2023 sem mun fara fram í Ástralíu og Nýja Sjálandi.
48 lið frá Evrópu verða í pottinum og FIFA mun draga í 8 riðla sem hver inniheldur 6 lið.
Undankeppnin sjálf hefst svo í september næstkomandi en leikjagluggarnir eru þessir:
Leikdagar undankeppni HM 2023
13. - 21. september 2021
18. - 26. október
22. - 30. nóvember
4. - 12. apríl 2022
29. ágúst - 6. september 2022
Umspil
3. - 11. október 2022
Hvað þarf til að komast á HM?
Þau átta lið sem vinna sína riðla fara sjálfkrafa í lokakeppni Heimsmeistaramótsins en liðin í 2. sæti fara í umspil og þar flækjast málin heldur betur.
Í umspili eru dregin saman lið sem enda í 2. sæti riðlanna og bara sigurvegarar úr þremur viðureignum vinna sér þar sæti á HM.
Það lið sem vann sitt umspil, en náði verstum árangri í undankeppninni og umspilinu samanlagt þarf að fara í aðra keppni til að reyna að vinna sér sæti á HM.
Sú keppni verður umspilskeppni sem verður leikin í Ástralíu og Nýja Sjálandi. Tíu lið taka þátt, aðeins eitt frá Evrópu og Eyjaálfu, en tvö frá Asíu, Afríku, Norður Ameríku og Suður Ameríku. Leikið verður í þremur riðlum og liðin sem vinna riðla sína fara í lokakeppnina. Ekki er ljóst hvenær þetta mót fer fram, mögulega í nóvember 2022, ef ekki þá í febrúar eða apríl 2023.
Ísland með á EM í Englandi næsta sumar
Það er ljóst að það er stórmót tvö ár í röð hjá kvennalandsliðum því Evrópumótið fer fram í Englandi næsta sumar.
Mótið fer fram 6. - 31. júlí á átta völlum á Englandi þar sem hæst ber Wembley í Lundúnum og Old Trafford í Manchester.
Ekki er enn búið að ákveða hvenær verður dregið í riðla þar sem umspili um sæti á mótinu er ekki lokið fyrr en annað kvöld.
Ísland hefur þegar tryggt sér þátttökurétt í lokakeppni mótsins en um er að ræða fjórða Evrópumót íslenska liðsins í röð.
Athugasemdir