Fotbolti.net
12.06.18 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Björn Bergmann: Mikil spenna en ekkert stress

Auglýsing
Björn Bergmann er bjartsýnn.

Björn Bergmann er bjartsýnn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu, það er samt ekkert stress. Maður er bara klár í leikinn. Argentínumenn eru sterkir og með góða leikmenn,\" segir Björn Bergmann Sigurðarson, sóknarmaður íslenska liðsins.

Spennan fyrir komandi leik gegn Argentínu er öll að magnast en Björn talar um hversu ólík liðin séu og að Ísland sé með eiginleika sem þeir argentínsku gætu átt í vandræðum með.
„Það sem þeir eru slæmir í erum við góðir í og öfugt. Þetta er plús á plús. Ég held að þetta verði meira okkur í hag. Við erum lið og leikmenn sem geta tekið á stórum liðum. Það gæti reynst erfitt fyrir þá að komast í gegnum okkur.\"

„Það er gaman að vera kominn hingað í smá verndaðra umhverfi, á gott hótel með góðan mat. Það er allt sem við þurfum hérna í Rússlandi og við getum ekki kvartað yfir neinu. Kokkarnir okkar eru að standa sig gríðarlega vel.\"

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Björn meðal annars um möguleika sína á byrjunarliðssæti gegn Rússlandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.