Fotbolti.net
12.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

4. deild: Stór sigur hjá Elliða - Hamar og Vængir Júpiters skoruðu þrjú

Hamar er í öðru sæti deildarinnar

Hamar er í öðru sæti deildarinnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hamar vann fimmta deildarleik sinn á tímabilinu í 4. deild karla í gær.
Hvergerðingar unnu 3-0 sigur á Árborg. Rodrigo Depetris skoraði tvö mörk og Brynjólfur Þór Eyþórsson eitt.

Hamar er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig, þremur stigum á eftir toppliði Álftaness.

Elliði var í ham gegn ÍH en lokatölur þar urðu 6-2. Pétur Hrafn Friðriksson og Adam Fijalkowski skoruðu báðir tvö mörk fyrir Elliða, sem er í 4. sæti með 10 stig.

Vængir Júpiters unnu annan deildarleik sinn er liðið lagði Álafoss að velli, 3-1. Öll mörk Vængjanna komu í fyrri hálfleik, en þau gerðu Aðalgeir Friðriksson, Brynjar Lár Bjarnason og Eyþór Daði Hauksson.

Vængirnir eru í 7. sæti með sex stig en Álafoss er á botninum með aðeins þrjú stig.

Úrslit og markaskorarar:

Elliði 6 - 2 ÍH
1-0 Pétur Óskarsson ('8 )
2-0 Jóhann Andri Kristjánsson ('10 )
3-0 Brynjar Skjóldal Þorsteinsson ('23 )
3-1 Pétur Hrafn Friðriksson ('29 )
4-1 Adam Fijalkowski ('41 )
4-2 Pétur Hrafn Friðriksson ('60 )
5-2 Adam Fijalkowski ('63 )
6-2 Eyjólfur Andri Sverrisson ('69 )

Hamar 3 - 0 Árborg
1-0 Rodrigo Leonel Depetris ('3 )
2-0 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('24 )
3-0 Rodrigo Leonel Depetris ('67 )

Vængir Júpiters 3 - 1 Álafoss
1-0 Aðalgeir Friðriksson ('18 )
2-0 Brynjar Lár Bjarnason ('32 )
3-0 Eyþór Daði Hauksson ('35 )
3-1 Arnór Gauti Ragnarsson ('56 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes12+2433
2Hamar12+3131
3Árborg11+2625
4Elliði12-219
5Úlfarnir12+615
6Vængir Júpiters11-711
7ÍH12-1110
8Álafoss12-168
9KFR12-188
10Hafnir12-337
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.