Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. október 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Real Madrid vill ekki framlengja strax við Modric
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur ákveðið að fresta samningaviðræðum við miðjumanninn Luka Modric.

Króatíski miðjumaðurinn verður samningslaus næsta sumar og hann vill sjálfur vera áfram hjá Real Madrid.

Hinn 35 ára gamli Modric er meðal annars sagður vera til í að taka á sig launalækkun fyrir nýjan samning.

Samkvæmt fréttum frá Spáni ætlar Real Madrid hins vegar að bíða með að ákveða hvort hann fái nýjan samning.

Modric kom til Real Madrid frá Tottenham árið 2012.
Athugasemdir
banner
banner