Fotbolti.net
12.12.12 - 13:05
Magnús Már Einarsson

Alfreð sagður undir smásjá Liverpool

Alfreð sagður undir smásjá Liverpool
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enska vefsíðan Sports Direct News segir að Alfreð Finnbogason framherji Heerenveen sé undir smásjá Liverpool

Samkvæmt frétt á síðunni hafa njósnarar Liverpool fylgst með Alfreð að undanförnu.

Taka ber þessum fréttum með fyrirvara en þó er ekki ólíklegt að einhver félög reyni að krækja í Alfreð þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Alfreð hefur farið á kostum með Heerenveen í Hollandi á þessu tímabili þar sem hann hefur skorað 16 mörk í 15 leikjum í öllum keppnum.

Liverpool mun að öllum líkindum reyna að kaupa framherja þegar félagaskiptaglugginn opnar en Luis Suarez er eini hreinræktaði framherjinn hjá liðinu í dag.

Heimild: Sports Direct News

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.