13.05.16 - 22:29
Jóhann Ingi Hafþórsson
Milos: Dómararnir missa sig þegar þeir eru í sjónvarpi
Auglýsing

Milos Milojevic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Milos Milojevic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það vantaði sömu línu í dómgæslunni,\" sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings eftir 1-0 tap gegn Breiðablik í kvöld.
Atli Sigurjónsson skoraði eina markið í baráttuleik þar sem Víkingar léku allan seinni hálfleikinn einum færri eftir að Viktor Bjarki Arnarson fékk að líta tvö gul spjöld á jafn mörgum mínútum.

„Ef ég segi það sem mig langar að segja þá fer ég í bann. Þeir missa sig þegar þeir eru í sjónvarpi.\"
Hann var hins vegar ánægður með margt í leik síns liðs.
„Það kom mér á óvart hvað við vorum með mikinn karakter í seinni hálfleik. Það er erfitt að spila á móti blikum sem færa boltann vel.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.