Fotbolti.net
13.06.25 - 11:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Horfa til Man City í leit að arftaka Wirtz

James McAtee.

James McAtee.

Canon

Mynd: EPA

Það er búist við því að Bayer Leverkusen muni gera tilboð í James McAtee, leikmann Manchester City, þegar félagaskiptaglugginn opnar.

Leverkusen er að selja Florian Wirtz til Liverpool fyrir 116 milljónir punda.
Hinn 22 ára gamli McAtee gæti fyllt í skarðið sem Wirtz skilur eftir sig en hann getur spilað bæði á kanti og framarlega á miðsvæðinu.

McAtee er þessa stundina með fyrirliðabandið hjá Englandi á EM U21 landsliða.

Leikmaðurinn er sagður spenntur fyrir því að fara til Leverkusen ef félögin tvö komast að samkomulagi, en hann hefur ekki fengið sérlega mörg tækifæri hjá City. Kaupverðið gæti verið í kringum 25 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.