Hinn tvítugi Michael Obafemi kom inn á sem varamaður og var hetja Southampton þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Manchester United.
„Magnað. Við náðum jafnteflinu. Ég er bara ánægður að ég náði jöfnunarmarkinu," sagði Obafemi eftir leik.
„Þetta er magnað fyrir mig persónulega, en sem lið förum við hvert sem er til að ná í þrjú stig. Við tókum eitt stig í dag en tókum jákvætt skref."
„Ég var viss um að ég gæti skorað. Ég hitaði vel upp frá byrjun seinni hálfleiks."
Mark Obafemi kom eftir 95 mínútur og 47 sekúndur. Manchester United hefur ekki fengið á sig mark síðar í einum leik frá því byrjað var að telja nákvæma tíma marka.
95:47 - Michael Obafemi's leveller was the latest Premier League goal Manchester United have conceded at Old Trafford since we have exact goal times available (2006-07). Drama.#MUNSOU pic.twitter.com/asNKMHHrGS
— OptaJoe (@OptaJoe) July 13, 2020
Athugasemdir