Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. ágúst 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lichtsteiner leggur skóna á hilluna
Stephan Lichtsteiner.
Stephan Lichtsteiner.
Mynd: Getty Images
Stephan Lichtsteiner hefur lagt skóna á hilluna eftir býsna farsælan fótboltaferil.

Lichtsteiner er 36 ára gamall og endaði hann ferilinn hjá Augsburg í Þýskalandi. Hann spilaði 20 leiki í þýsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Lichtsteiner, sem lék í stöðu hægri bakvarðar, var þar áður leikmaður Arsenal, Juventus, Lazio, Lille og Grasshopper. Þá spilaði hann 108 landsleiki fyrir Sviss og var um tíma landsliðsfyrirliði.

„Stórt knús til stuðningsmanna minna og fylgjenda. Takk fyrir mig," skrifaði Lichtsteiner á Twitter.


Athugasemdir
banner
banner
banner