13.08.26 - 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Mikil dramatík í Árbæ - Rúnar Páll sá rautt í fimm marka leik

Holtan bjargaði stigi fyrir Aftureldingu sem er enn á toppnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Diouck skoraði tvö og fór síðan meiddur af velli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll sá rautt

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Atli Þór skoraði frábært sigurmark HK

Mynd: HK

Fylkir og Afturelding gerðu 3-3 jafntefli í hádramatískum leik í Lengjudeild karla í kvöld. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu, fékk rautt spjald í 4-1 tapi gegn Njarðvík þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik. HK marði þá 2-1 sigur á Leikni í Kórnum.
Fylkismenn byrjuðu af krafti og Guðmundur Tyrfingsson kom þeim yfir strax á sjöttu mínútu.
Hornspyrna heimamanna var hreinsuð frá en þeir héldu sókninni á lífi. Boltinn barst til Eyþórs Wöhler sem kom honum áfram á Guðmund og hann skallaði í netið.
Óðinn Bjarkason jafnaði metin fjórtán mínútum síðar. Langt innkast barst inn í teiginn, varnarmenn Fylkis náðu ekki að hreinsa og eftir mikla skothríð tókst Óðni að koma boltanum yfir línuna.
Afturelding komst yfir á 50. mínútu og aftur kom markið eftir langt innkast. Aron Elí Sævarsson flikkaði boltanum á Hauk Örn Brink sem skoraði með góðu skoti út við stöng.
Forysta gestanna entist þó aðeins í níu mínútur. Guðfinnur Þór Leósson jafnaði með skalla eftir hornspyrnu og aðeins tveimur mínútum síðar var Fylkir komið yfir.
Heimamenn unnu boltann á miðjunni, brunuðu fram og Theodór Ingi Óskarsson kláraði hraða sóknina með marki.
Joacim Holtan jafnaði metin fyrir Aftureldingu á 70. mínútu eftir laglegan undirbúning Hauks Arnar.
Fylkismenn voru hársbreidd frá því að næla í öll stigin undir lokin. Allt ætlaði um koll að keyra þegar Hlynur Sævar Jónsson kom boltanum í netið en hann var flaggaður rangstæður og markið dæmt af.
Lokatölur urðu 3-3 eftir mikinn fjörleik. Afturelding er á toppnum með 35 stig en Fylkir í þriðja sæti með 34 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.
Njarðvík afgreiddi Gróttu í fyrri hálfleik
Njarðvík vann glæsilegan 4-1 útisigur á Gróttu á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi.
Gestirnir gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik. Arnar Helgi Magnússon kom þeim yfir strax á þriðju mínútu þegar hann fékk boltann eftir aukaspyrnu og hamraði honum í þaknetið.
Oumar Diouck var næstur á blað. Arnleifur Hjörleifsson sendi hann inn fyrir vörnina og Diouck kláraði færið listavel.
Valdimar Jóhannsson bætti þriðja markinu við á 32. mínútu með stórkostlegu skoti fyrir utan teiginn.
Diouck skoraði sitt annað mark aðeins fimm mínútum síðar. Hann fékk boltann við vítateigslínuna og kláraði af öryggi en þurfti skömmu síðar að fara haltrandi af velli.
Grótta klóraði í bakkann undir lok fyrri hálfleiks þegar Caden McLagan kom sér á nærsvæðið eftir hornspyrnu og stýrði boltanum í netið.
Þriggja marka forskot Njarðvíkur reyndist hins vegar allt of stór biti fyrir Gróttumenn sem náðu ekki að hleypa spennu í leikinn eftir hlé.
Rúnar Páll, þjálfari Gróttu, fékk síðan rautt spjald á lokamínútunum eftir að hafa látið nokkur vel valin orð falla í garð Twana Khalid Ahmed, dómara leiksins.
Njarðvík fékk færi til að bæta við en sætti sig við öruggan 4-1 sigur. Liðið fer upp í fjórða sæti með 32 stig en Grótta er í því sjötta með 26 stig.
Draumamark Atla tryggði HK sigurinn
HK marði 2-1 sigur á Leikni í Kórnum þar sem Atli Þór Gunnarsson skoraði sigurmarkið þegar níu mínútur voru eftir.
Mikið fjör var í leiknum fyrsta hálftímann og þurftu markverðir beggja liða ítrekað að taka á honum stóra sínum.
Leikurinn róaðist eftir það og var enn markalaust þegar liðin gengu til búningsklefa.
HK braut ísinn snemma í síðari hálfleik. Leiknismenn skölluðu boltann frá en Karl Ágúst Karlsson tók hann viðstöðulaust á lofti og þrumaði honum í netið.
HK fékk tækifæri til að bæta við en Ólafur varði áfram vel í marki Leiknis og hélt liðinu inni í leiknum.
Jöfnunarmarkið kom þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Jóhann Þór Arnarsson átti slæma sendingu til baka sem Björn Breki Burknason komst inn í. Hann fann Daða Bæring Halldórsson sem skoraði.
Atli Þór tryggði HK síðan sigurinn þegar níu mínútur voru eftir. Hann fékk boltann fyrir utan teig, mundi skotfótinn og hamraði honum út við stöng.
HK er í fimmta sæti með 31 stig en Leiknir í því áttunda með 22 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.
Fylkir 3 - 3 Afturelding
1-0 Guðmundur Tyrfingsson ('6 )
1-1 Óðinn Bjarkason ('20 )
1-2 Haukur Örn Brink ('50 )
2-2 Guðfinnur Þór Leósson ('59 )
3-2 Theodór Ingi Óskarsson ('61 )
3-3 Joacim Emil Godhei Holtan ('70 )
Lestu um leikinn
HK 2 - 1 Leiknir R.
1-0 Karl Ágúst Karlsson ('50 )
1-1 Daði Bærings Halldórsson ('77 )
2-1 Atli Þór Gunnarsson ('81 )
Lestu um leikinn
Grótta 1 - 4 Njarðvík
0-1 Arnar Helgi Magnússon ('3 )
0-2 Oumar Diouck ('17 )
0-3 Valdimar Jóhannsson ('32 )
0-4 Oumar Diouck ('37 )
1-4 Caden Robert McLagan ('45 )
Rautt spjald: Rúnar Páll Sigmundsson, Grótta ('89) Lestu um leikinn

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 16 | +22 | 34 |
| 2 | Þróttur R. | 17 | +20 | 34 |
| 3 | Fylkir | 17 | +9 | 33 |
| 4 | Njarðvík | 18 | +8 | 32 |
| 5 | HK | 18 | +9 | 31 |
| 6 | Grótta | 17 | +1 | 26 |
| 7 | Vestri | 18 | -9 | 24 |
| 8 | Leiknir R. | 18 | -3 | 22 |
| 9 | ÍR | 18 | -9 | 19 |
| 10 | Grindavík | 17 | -7 | 17 |
| 11 | Völsungur | 18 | -14 | 17 |
| 12 | Ægir | 18 | -27 | 8 |