Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 13. september 2021 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Everton og Burnley: Townsend og Doucoure bestir
Mynd: Getty Images
Andros Townsend var besti maður vallarins er Everton lagði Burnley að velli í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley og lagði fyrsta mark leiksins upp fyrir Ben Mee á 53. mínútu en heimamenn í Liverpool sneru stöðunni við fljótt.

Townsend skoraði og lagði upp og urðu lokatölur 3-1. Townsend fær 8 í einkunn frá Sky Sports fyrir sinn þátt í sigrinum eins og Abdoulaye Doucoure sem var öflugur á miðjunni og átti tvær stoðsendingar.

Jóhann Berg fær 6 í einkunn og var meðal betri leikmanna Burnley.

Everton: Pickford (6), Coleman (6), Mina (6), Godfrey (6), Keane (7), Digne (6), Townsend (8), Allan (6), Doucoure (8), Gray (7), Richarlison (6)
Varamaður: Gomes (7)

Burnley: Pope (6), Lowton (5), Tarkowski (6), Mee (7), Taylor (5), Guðmundsson (6), Westwood (5), Brownhill (6), McNeil (6), Wood (6), Barnes (6)
Varamenn: Lennon (5), Vydra (5)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner