Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 13. október 2020 08:30
Victor Pálsson
Boateng opinn fyrir öllu
Mynd: Getty Images
Jerome Boateng, leikmaður Bayern Munchen, er bæði opinn fyrir því að framlengja samning sinn við félagið eða róa önnur mið.

Boateng er 32 ára gamall í dag en hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við þýska stórliðið.

Það er oft talað um að Boateng gæti verið að kveðja Allianz Arena en hann er ekki að hugsa mikið út í það að svo stöddu.

„Ég get séð mig skrifa undir framlengingu. Börnunum líður eins og heima hérna. Við erum með Hansi Flick sem stjóra og það er skemmtun í þessu liði," sagði Boateng.

„Ég er ánægður hjá Bayern og glaður að ég sé að njóta fótboltans á ný. Ég er þó hrifinn af því að læra nýja hluti og færa mig um set."

„Hvort sem það sé í Bandaríkjunum, Asíu eða í öðru Evrópulandi. Við sjáum til en það þarf ekki að gerast."
Athugasemdir
banner
banner
banner