Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. nóvember 2020 20:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Birkir neitaði tilboði KA
Aron Birkir gegn Aftureldingu.
Aron Birkir gegn Aftureldingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA hafði samband við Aron Birki Stefánsson, markvörð Þórs, og sóttist eftir að fá hann í sínar raðir. Aron Birkir neitaði tilboði KA.

Aron er 21 árs gamall og hefur verið aðalamarkvörður Þórs síðustu fjögur tímabil. Hann er uppalinn á Grenivík en skipti yfir í Þór árið 2011.

KA er í leit að markverði eftir að Aron Dagur Birnuson ákvað að halda annað. Aron Dagur samdi við Grindavík fyrr í þessari viku.

KA endaði í 7. sæti Pepsi Max-deildarinnar á þessu tímabili. Kristijan Jajalo varði mark liðsins í 13 leikjum og Aron Dagur í fimm. Þór endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner