Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. janúar 2021 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir Michael Newberry eftirsóttan af Pepsi Max-félögum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framtíð enska varnarmannsins Michael Newberry er óljós. Samningur hans við Víking Ólafsvík rann út eftir síðasta tímabil og gæti hann leikið annars staðar á komandi leiktíð.

Newberry er 23 ára og hefur leikið með Ólsurum síðustu þrjú tímabil í næstefstu deild, alls sextíu leikir í deildarkeppni.

Lucas Arnold sem fylgist vel með íslenska boltanum greindi frá því á Twitter í gær að Newberry væri með í höndunum nokkur tilboð frá liðum í efstu deild, Pepsi Max-deildinni.

Arnold er á þeirri skoðun að Newberry hafi sýnt það með Ólsurum að hann eigi skilið að spila í betri deild.


Athugasemdir
banner
banner
banner