Fotbolti.net
14.06.18 - 20:19
Egill Sigfússon

Túfa: Svolítið okkar saga í sumar

Auglýsing
Túfa var verulega vonsvikinn með tapið í dag

Túfa var verulega vonsvikinn með tapið í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

KA tapaði 2-1 á móti Stjörnunni á Akureyrarvelli í kvöld í hörkuleik í 9.umferð Pepsí-deildarinnar. Túfa þjálfari KA manna sagði að það væri svekkjandi að tapa svona leik þar sem þeir voru ekki verri aðilinn.
„Við vorum aldei lakari aðilinn í leiknum, við vorum að spila við lið sem er yfirleitt í titilbaráttu. Ég er ósáttur með að okkur er refsað um leið og við gerum mistök, það er svolítið okkar saga í sumar.\"

KA voru ekki lakari aðilinn í leiknum og höfðu verið síógnandi í seinni hálfleik, Túfa sagði að nú sé bara kominn tími til að snúa þessu gengi við eftir landsleikjahlé.

„Það var svolítið erfitt að spila í fyrri hálfleik, þeir voru að nýta vindinn vel með löngum boltum en mér fannst aldrei nein hætta. Svo í seinni hálfleik erum við að fá dauðafæri til að komast yfir og dauðafæri til að jafna leikinn. En við verðum að halda áfram og snúa þessu gengi við.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.