Víkingar eru í kvöld að fagna sínum öðrum bikarmeistaratitli í sögu félagsins.
Víkingur hafði betur gegn FH í úrslitaleiknum, sem fram fór á Laugardalsvelli í dag. Það var Óttar Magnús Karlsson sem skoraði eina markið úr vítaspyrnu.
Vítaspyrnan var dæmt eftir að Þórður Þorsteinn Þórðarson fékk boltann í höndina.
Nokkrum mínútum síðar fékk Pétur Viðarsson, leikmaður FH, að líta rauða spjaldið þegar hann steig ofan á Guðmund Andra Tryggvason. Skiptar skoðanir voru á dómnum.
Vísir.is hefur birt myndband af vítaspyrnudómnum, markinu og rauða spjaldinu.
Að neðan má sjá þetta allt saman, en hér á síðunni má finna viðtöl og aðrar fréttir tengdar úrslitaleiknum.
Athugasemdir