Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   mán 14. september 2020 18:23
Aksentije Milisic
Byrjunarlið Brighton og Chelsea: Werner og Havertz byrja
Mynd: Getty Images
Klukkan 19:15 hefst seinni leikur kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni en þá mætast Brighton og Chelsea á Amex vellinum.

Hjá heimamönnum er Adam Lallana í byrjunarliðinu en hann kom frá Liverpool í sumar. Þá er það Neal Maupey sem byrjar frammi.

Chelsea hefur verið duglegt að versla í sumar og er komið með hörku lið. Werner og Havertz eru báðir í byrjunarliðinu og þá eru þeir Christiensen og Zouma í vörninni.

Hakim Ziyech er ekki í leikmannahópi Chelsea í dag en hann á við meiðsli að stríða.

Byrjunarlið Brighton: Ryan, Lamptey, White, Dunk, Webster, March, Bissouma, Alzate, Lallana, Trossard, Maupay.
(Varamenn: Steele, Veltman, Burn, Stephens, Jahanbahksh, Gross, Connolly)

Byrjunarlið Chelsea: Kepa, James, Christiensen, Zouma, Alonso, Jorginho, Kante, Mount, Cheek, Havertz, Werner.
(Varamenn: Caballero, Rudiger, Azpilicueta, Barkley, Odoi, Giroud, Abraham)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner