Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 14. desember 2022 19:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enn eitt áfallið fyrir Marokkó - Saiss ekki heldur tilbúinn í slaginn
Mynd: EPA

Nayef Aguerd og Romain Saiss leikmenn Marokkó voru tæpir fyrir leik liðsins gegn Frakklandi í undanúrslitum en báðir voru upphaflega í byrjunarliðinu.


Rétt áður en flautað var til leiks heltist Aguerd úr lestinni og nú eftir um 20 mínútna leik er Saiss farinn af velli vegna meiðsla.

Frakkland er með eins marks forystu en Olivier Giroud hefði getað tvöfaldað hana eftir að hafa farið ansi illa með Saiss en skot hans hafnaði í stönginni.

Selim Amallah er kominn inn á í stað Saiss og Hakim Zyiech tekur við fyrirliðabandinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner