Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. janúar 2021 22:10
Victor Pálsson
Fótbolta.net mótið: Átta mörk í frábærum leik í Reykjaneshöllinni
Kenny skoraði þrennu.
Kenny skoraði þrennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Njarðvík 4 - 4 Selfoss
1-0 Kenneth Hogg
1-1 Aron Einarsson
1-2 Ingvi Rafn Óskarsson(víti)
2-2 Atli Freyr Ottesen Pálsson
3-2 Gylfi Dagur Leifsson
3-3 Kenneth Hogg
3-4 Aron Darri Auðunsson
4-4 Kenneth Hogg

Það var virkilega mikið fjör í Fótbolta.net mótinu í kvöld þegar Njarðvík og Selfoss áttust við í Reykjaneshöllinni.

Undirbúningstímabilið hér heima er farið af stað en fyrr í kvöld lagði ÍA lið Gróttu með tveimur mörkum gegn engu.

Það voru alls átta mörk skoruð í seinni viðureign kvöldsins en leik Njarðvíkur og Selfoss lauk með 4-4 jafntefli - stórkostleg skemmtun.

Kenneth Hogg var maður leiksins í kvöld en hann skoraði þrennu fyrir Njarðvík í jafnteflinu og einnig síðasta markið til að tryggja sigur.

Fótbolta.net mótið er farið á fullt en á morgun eru einnig fjórir leikir þar sem Breiðablik og FH eru á meðal annars í eldlínunni.
Athugasemdir
banner
banner