Cristiano Ronaldo er ekki í leikmannahópi Manchester United gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag en leikurinn fer fram á Villa Park klukkan 17:30.
Lucas Digne kemur beint inn í byrjunarlið Villa en hann var keyptur frá Everton á dögunum. Philippe Coutinho er á bekknum.
Ronaldo er fjarri góðu gamni og ekki klár í slaginn gegn Villa. Hann er utan hóps líkt og Marcus Rashford. Ronaldo hefur verið að glíma við meiðsli en ekki er vitað um ástæður Rashford.
Hinn ungi og efnilegi Anthony Elanga er í byrjunarliði United og þá kemur Nemanja Matic og Alex Telles inn í liðið. Edinson Cavani er fremstur.
Aston Villa: Martinez; Cash, Konsa, Mings, Digne; Luiz, Sanson, Ramsey; Buendia, Ings, Watkins.
Man Utd: De Gea; Dalot, Lindelof, Varane, Telles; Matic, Fred; Greenwood, Fernandes, Elanga; Cavani.
Athugasemdir