Leiknir F. 2 - 2 Afturelding
1-0 Stefán Ómar Magnússon ('4)
1-1 Ragnar Már Lárusson ('17)
2-1 Marteinn Már Sverrisson ('24)
2-2 Ragnar Már Lárusson ('41)
1-0 Stefán Ómar Magnússon ('4)
1-1 Ragnar Már Lárusson ('17)
2-1 Marteinn Már Sverrisson ('24)
2-2 Ragnar Már Lárusson ('41)
Leiknir F. gerði jafntefli við Aftureldingu er liðin mættust í fyrstu umferð Lengjubikarsins.
Heimamenn komust yfir í tvígang í Fjarðabyggðarhöllinni en í bæði skiptin jafnaði Ragnar Már Lárusson.
Stefán Ómar Magnússon gerði fyrsta mark leiksins strax á fjórðu mínútu og skoraði Marteinn Már Sverrisson annað mark Leiknis, skömmu eftir fyrra jöfnunarmark Ragnars Más.
Ekkert var skorað í síðari hálfleik og eitt stig á lið niðurstaðan. Framundan eru leikir við KR, Breiðablik, ÍA og Leikni R.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir