Þrír leikir fara fram í Lengjubikarnum í dag.
Haukar og Hvíti riddarinn eigast við klukkan 18:00 í riðli 2 í B-deild karla.
Haukar eiga möguleika á að taka toppsætið í riðlinum. Þá mætast Úlfarnir og KFK í riðli 4 í C-deild. Úlfarnir eru með 3 stig eftir tvo leiki en KFK á toppnum með 9 stig. KFK getur tryggt toppsætið.
ÍA og ÍH mætast þá í riðli 1 í C-deild kvenna. Þetta er fyrsti leikur ÍH í riðlinum en annar leikur ÍA.
Leikir dagsins:
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 2
18:00 Haukar-Hvíti riddarinn (Ásvellir)
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 4
20:00 Úlfarnir-KFK (Framvöllur)
Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 1
20:00 ÍA-ÍH (Akraneshöllin)
Athugasemdir