Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 15. maí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe bætti met Henry - Komið að 71 marki
Kylian Mbappe
Kylian Mbappe
Mynd: EPA
Kylian Mbappe skoraði eitt og lagði upp tvö í 4-0 sigri Paris Saint-Germain í gær og hefur nú komið að 71 marki á tímabilinu fyrir bæði PSG og franska landsliðið.

Mbappe lagði upp tvö mörk fyrir Lionel Messi áður en hann skoraði úr víti í síðari hálfleiknum.

Hann hefur því skorað 36 mörk og lagt upp önnur 26 fyrir PSG í öllum keppnum á þessari leiktíð.

Þá hefur hann komið að sjö mörkum með franska landsliðinu en hann skoraði 5 mörk og lagði upp 2 í undankeppni HM. Þjóðadeildin er ekki tekin með inn í dæmið.

Mbappe hefur því komið að 71 marki á tímabilinu og hefur tekið fram úr Thierry Henry sem átti metið frá 2002-2003 en hann kom að 68 mörkum það tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner